04.05.2009 22:07:46 / þýnkó

Er að spá í að hætta...

Kæru vinir ég er að spá í að fara að hætta þessu blogg dóti , er ekki að nenna því og það skrifar hvort sem er varla neinn comment, þannig að takk fyrir að kíkja hérna inn en ef þið viljið vita eitthvað meira en það sem þið fréttið út í bæ, þá skuluð þið bara vera í bandi við mig.:haha:

Sé til kannski eftir einhvern tíma, en alla vega bless í bili........8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2009 11:15:40 / þýnkó

Allt í lagi þá...

Já ég veit, ógeðslega löt að blogga þessa dagana:s eða kannski frekar síðustu mánuði:lol:

Ég hef svo sem lítið til að tala um þessa dagana, en ætla að reyna að skrifa eitthvað.

Við erum farin að bera út moggann á morgnana, erum búin að vera að því í tvær vikur núna. Það er helv... erfitt að vakna svona á nóttunni og leggja sig í smá stund(1- 1 og 1/2 tíma) áður en maður vaknar til að fara að vinna. Við skiptum þessu á milli okkar þannig að Yngvi tekur eina viku og ég eina, sem betur fer var ég að klára mína viku, :haha: þannig að ég er í fríi þangað til næsta laugardag. En þetta er ótrúlega erfitt, þá meina ég bara að þurfa að vakna, hitt er ekkert mál  bara ódýr líkamsrækt. En ég er helmingi latari fyrir vikið að vera eitthvað að tölvast.

Það verður brjálað að gera í apríl hjá okkur: Tvær skírnarveislur, kannski páskaferðalag, fermingarafmæli hjá mér og held ég ein eða tvær afmælisveislur, sem betur fer erum við held ég ekki að fara í neina fermingarveislu. En það er ljóst að maður er ekki að fara að grennast í apríl frekar en aðra mánuði;)

Annars held ég að það sé frekar lítið að frétta. Svo hérna koma afmæliskveðjurnar hehe Elsku besta, sætasta, fínasta og fyndasta  Dísinn mín Til hamingju með afmælið þitt á miðvikudaginn xoxox , svo eru það líka Sigursteinn í lok apríl, tvíburaranir Eva Lind og Sara Líf, Alexander Breki og herra Baldur Fannar verður eldgamall líka. :haha::haha: knús á ykkur öll og til hamingju með afmælið.

Fyrir ykkur hin, blogga seinna en ekki bíða neitt voða spennt kemur kannski ekki fyrr en rúman mánuð,:lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 19:43:59 / þýnkó

Hehe

Það er bara fínt að frétta, búið að vera brjálað að gera undanfarið, staffadjamm, barnaafmæli, vinna, skipuleggja partý og eitthvað eins og ég sagði síðast. Svo er ég líka bara ansk... löt að blogga og líka eitthvað inn á facebook, rétt kíkji þar inn til að gá hvort ég sé búin að fá póst. Langar bara að taka því rólega þegar ég kem heim.:haha

Það gengur þokkalega að pakka niður á Mávabrautinni, við eigum bara svo mikið af dóti að ég veit ekkert hvað ég á að gera við það allt. Eiginlega tvöfalda búslóð;)
Svo er maður bara farin að bíða eftir nýjustu meðlimunum í vinahópinn, Konný hlýtur að fara að unga út og svo er Mæja stuttu seinna. Annars er það nú ekki mikið sem er að frétta alla vega ekki sem´ég man eftir. Svo ég bið að heilsa í bili8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.01.2009 21:30:28 / þýnkó

Gleðilegt ár, betra seint en aldrei:D

Hæ hæ sælt veri fólkið. Það er nú lítið að frétta. Það gengur ekkert að selja íbúðirnar okkar en við erum komin með leigjanda á Mávabrautinni, frá og með 1 mars. En íbúðirnar eru ennþá á sölu fyrir því.:D:D:D

Annars er nú voða lítið að gerast, Þórhildur systir er nýbúin að vera hér fyrir sunnan. Það var bara æðislegt, nóg að gera hjá stelpunum að leika sér saman. Annars gengur bara allt sinn vanagang, Emilía er byrjuð í balletinum aftur og er voða spennt, sýnir okkur dansana með miklum tilþrifum:d Algjör skvísa!!:haha:.

Það er nóg að djammi framundan8) Sumarbústaður um helgina, tengdapabbi á afmæli. Starfsstöðvadjamm 13. feb. og annað hvort árshátið eða óvissuferð 14. feb. Svo er útskrift hjá Heiðu Kristínu mágkonu 28. febrúar. Sem sagt nóg að gera svo verður 15 ára fermingarafmæli hjá mér í mars eða apríl, já ég veit, 15 ára fermingarafmæli en ég er víst bara svona gömul.

Annars ekkert nýtt, bið að heilsa bara öllum sem kíkja á síðuna.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2008 12:46:44 / þýnkó

Jóla hvað??

Hehe, veit það er langt síðan ég bloggaði. En það er búið að vera brjálað að gera hjá mér undanfarið eins og hjá öðrum bíst ég við. Rétt fyrir jólin lögðumst við öll í magakveisu, mjög skemmtilegt, Emilía Sól byrjaði á aðfaranótt mánudagsins, ég tók við á mánudeginum og Yngvi tók svo við á Þorláksmessu. Rosa gaman en við náðum þó að jafna okkur fyrir aðfangadagskvöld eða svona nokkurn vegin.:s

Við vorum heima hjá okkur í fyrsta skipti núna á aðfangadagskvöld, þ.e.a.s. við borðuðum heima hjá okkur og tókum upp pakkana. Mamma og pabbi kíktu á okkur um kl. 1/2 8 og við kíktum svo í Sandy Hills til tengdó seinna um kvöldið. Þetta var bara mjög næs, ekkert stress og gáfum okkur góðan tíma í þetta. En þegar mamma og pabbi komu vorum við nýbyrjuð að taka upp pakkana.:)

Restin af jólum voru ekki eins róleg og þetta kvöld, brjálað að gera í jólaboðum eins og alltaf, Tvö á jóladag, hádegismatur og kvöldmatur í bænum og svo aftur hádegismatur í bænum á annan. Svo er maður svo þreyttur inn á milli að maður nennir ekki að gera neitt. Og greyið Emilía Sól er hundleið á þreyttu foreldrunum sínum,:$hehe.

Jæja læt þetta duga í bili, ég verð þó að segja að lokum að ég er mjög ánægð með jólin þrátt fyrir allt þetta flakk og fyrir vini opg vandamenn í útlöndum þá hugsaði ég til ykkar þó að ég hafi ekki sent nei kort til ykkar, ákvað að hafa þetta bara svona innanlands þetta árið:S En Þið fáið alla vega kveðju hérna, Elsku Eydís, Sara og fjölskylda og einhverjir fleiri, Gleðileg Jól og farsælt komandi ár, takk kærlega fyrir allar góðu stundirnar og vonandi höfðuð þið það gott um jólin:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 23:52:51 / þýnkó

Jóla-eitthvað

Helló helló allir, komin tímí á smá línu.

Jólin eru víst að koma og mér finnst ég eiga endalaust mikið eftir að gera. Ég á eftir að kaupa slatta af gjöfum, jólaföt á skvísuna mína og jólamatinn sjálfan en við ætlum að vera heima hjá okkur á jólunum, veit samt ekki, ætli við kíkjum ekki eitthvað seinna um kvöldið, þegar við erum búin að opna pakkana og svoleiðis:D
 
Við fórum á jólahlaðborð með vinnunni hans Yngva um síðustu helgi, það var bara fínt. Maturinn og skemmtiatriðin voru ekkert sérstök bara svona allt í lagi. Við erum svo að fara á jólahlaðborð á föst. með vinnunni minni, hlakka mikið til ætla aðeins að fá mér í aðra tánna;)

:)Svo er bara jólaundirbúningurinn á fullu, er eitthvað að reyna að setja seríur upp en það gengur hægt og ég fékk meira segja smá rafstuð áðan, serían var eitthvað léleg og ég fékk stuð í lófann, mjög fyndið, svona ekta ég. Það var meira segja frekar vont en eins og ég sagði ekta ég. 

Annars er bara allt fínt að frétta af okkur hérna, gengur að vísu ekkert með íbúðirnar okkar en svona er þetta bara. En ég læt þetta duga í bili. kveðja Smúttið;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 10:21:16 / þýnkó

Bara eitthvað.....

Sælt veri fólkið, það er allt mjög gott að frétta hjá mér, partýið um daginn var bara skemmtilegt!!! Verð þó að viðurkenna að mig vantar u.þ.b. klukkutíma af kvöldinu, allt bjórnum að kenna, hehe:haha:. En við vorum alla vega mjög ánægð með kvöldið og ég held að það hafi flestir skemmt sér vel. Bjórdósa-gardínurnar voru þó ekki eins töff daginn eftir;)verð að viðurkenna það.

Ég er búin að setja íbúðina mína á sölu, þannig að nú eru báðar íbúðirnar okkar á sölu og örlögin verða bara að ráða, hvar við munum búa, það eru reyndar kannski ekki svo svakalega miklar líkur á því að það komi í ljós fljótlega, kreppa og svona í gangi:$ en ég ætla að krossleggja fingur og vil biðja alla sem lesa þetta að gera það líka. Það er nefnilega frekar erfitt að eiga tvær íbúðir og borga tvöfalt af öllu sérstaklega í svona efnahagsástandi( geggjað fullorðins orð, enda er ég greinilega orðin fullorðin eins og þið sáuð á síðasta bloggi, 8))svo ef þið þekkið einhvern sem langar í 67 fm2 blokkaríbúð eða 101fm2 parhús, endilega bendið þeim á mbl.is:haha:

Annars er nú ekki mikið að frétta, er búin að vera auli undanfarna daga, það er eitthvað veikindavesen á mér, frekar þreytandi. Hef samt ekki tíma til þess, brjálað að gera hjá mér, þannig að ég ætla í vinnuna á morgun og hætta þessum aumingjaskap. Jæja bið að heilsa :d

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 23:29:58 / þýnkó

Sigrún fullorðna:S

 

Halló halló, ég er á lífi,hehe.

Jæja þá er ég loksins búin í skólanum, er komin með BA gráðu í þroskaþjálfun:S, geðveikt fullorðin eitthvað. Og svo er ég líka orðin árinu eldri en ég var síðast þegar ég bloggaði.

Við vorum með matarboð um síðustu helgi í tilefni af útskriftinni minni og líka í tilefni af afmælinu hans Yngva og svo verður aðalpartýið um næstu helgi, hlakka bara til að skella mér út á lífið með vinunum:D Og þar sem ég er stelpa þá er ég strax farin að spá í það hvaða fötum ég á að vera í, verður það svaka flotti kjóllinn eða bara einhver djammföt, hvað finnst ykkur???
Lítið að frétta annars hérna, Dísin mín er farin til Perú í ár og það verður ferlega skrítið að hitta hana ekki, en hún er að prófa mjög spennandi hluti og það er bara frábært, það verður gaman að fylgjast með þessu ævintýri hjá henni.

 Ert eitthvað tóm núna eins og undanfarna mánuði um það hvað ég á að skrifa hérna svo ég er hætt í bili og ætla að leggja höfuðið í bleyti fyrir næsta blogg og takk fyrir allar kveðjurnar hérna og inn á facebook:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 19:37:59 / þýnkó

Skólinn næstum búin:S

Sælt veri fólkið, veit ég er voða löt núna að blogga:S 
 
En vitið þig hvað ég er búin að fá einkunnir fyrir lokaverkefni og annað fag sem vantaði inn hjá mér, vantaði reyndar bara að kynna lokaverkefnið og fag einkunn fyrir það. Svo núna er bara útskriftin mín eftir, en hún verður 25 okt. daginn fyrir afmælið mitt:haha:  Ótrúlegt að þetta sé loksins búið, svo nú þarf ég að fara að pæla í því hvað ég á að fara að læra næst8), segi svona, hef kannski mjög gott af því að hvíla mig aðeins og sinna skvísunni minni:)

Annars er bara allt mjög gott að frétta, allt gengur vel í einkalífinu og vinnunni. Heyri í ykkur seinna, kveðja Sigrún, næstum þroskaþjálfi;)

» 13 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 23:49:17 / þýnkó

Nýtt á nálinni

 Ó nei ég held að bloggheimar séu hálf dauðir þessa dagana, hehe. Ég er ógeðslega löt að skrifa eitthvað og allir sem ég kíkji daglega inn á eru líka búnir að vera latir undanfarið, nema María Jóna, hún er með nýja færslu:D

 En alla vega það er búið að vera nóg að gera undanfarið, Sandgerðisdagar í lok ágúst, ljósanótt í byrjun sept. Mjög gaman allt saman, sérstaklega ballið með Á móti Sól á Sandgerðisdögum, ég hitti fullt af fólki sem ég er ekki búin að tala við lengi, það vantaði samt eina mikilvæga persónu eða megabeibið mitt, hana Eydís, ballið hefði verið ennþá skemmtilegra ef hún hefi verið þar líka.

 Ég er að leggja lokahöndina á skólann, loksins!!! Er búin að senda lokahandrit til leiðbeinandans og fá feed back frá henni, kynnti ritgerðina fyrir 3 árs staðnemum núna í morgun og er að vinna í að gera ritgerðina tilbúna fyrir lokaskilin. Planið er að skila þessu tilbúnu inn í skóla á föstudaginn. Það verður bara geggjað að vera búin að þessu, ég er búin að vera nógu hel.... lengi að klára þennan blessaða skóla:lol:

 Það er líka búið að vera nóg að gera hjá Emilíu Sól undanfarið, en skvísan mín er orðin 4ra ára gömul, svo var hún líka að byrja í ballet, voða mikil dama. Held að það geti hentað henni mjög vel, svona lítil, létt prinsessa.:D

 Jæja nóg af spjalli um ekki neitt, nú koma kveðjurnar: amma Pálína(veit hún les þetta ekki en ...), Siggi  og Kristófer, Hannes og Jóhann til hamingju með afmælin ykkar!!!:D Man ekki eftir fleirum í bili, ef ég er að gleyma ykkur fyrirgefið;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 21:53:08 / þýnkó

Jæja var klukkuð

    Var víst klukkuð af Konný, hér kemur þetta þá:D

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

  • Kaupfélagið í Sandgerði
  • Leikskólinn Tjarnarsel
  • Ragnarssel
  • Grunnskólinn í Sandgerði

 Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

  • Fifty first date´s
  • Sweetest thing
  • Dirty dancing
  • Allar Lord of the ring´s

 Fjórir staðir sem ég hef búið á: 

Nú vandast málið, hehe

  • Klapparstígur 1 Sandy Hills
  • Ásabraut 23 Sandy Hills
  • Mávabraut 9d
  • …….vonandi Sandy hills, einhvern tímann í framtíðinni

 Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  • House
  • Csi New york,
  • Csi Las Vegas
  • American Idol

 Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • Kaupmannahöfn
  • London
  • Kaupmannahöfn
  • La Marina, Spáni

 Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):

  • Vf. Is
  • Hi.is
  • Khi.is
  • Facebook

 Fernt matarkyns sem ég held uppá:

  • Kjúklingur
  • Svínakjöt
  • Fahitas
  • Heimabökuð pitsa

 Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:

  • Skóla, fu…ng bækur
  • Fréttablaðið
  • Víkurfréttir
  • Séð og heyrt(?)

 Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:

  • Sólarlönd
  • Sumarbústaður
  • Laugar
  • Sólalönd

 Fjórir bloggarar sem ég klukka:

  • Óli Garðar, foli:D
  • Ótta
  • Eydís
  • Íris

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 21:22:00 / þýnkó

Góðan og blessaðan daginn..

 

Já góðan daginn aftur, er frekar léleg eitthvað að skrifa þessa dagana. En smá update, allir tilbúnir????;) Ég er búin í sumarfríi, er búin að vinna slatta í ritgerðinni og sú vinna heldur áfram næstu dagana, á að vera búin að skila öllu til leiðbeinanda fyrir 25. ágúst, Úff.....en það tekst samt alveg. Emilía búin í sumarfríi líka og við vorum mikið upp í bústað í fríinu, bara nice:D.  Held að það sé ekki mikið annað að frétta. ;)

 Stærstu fréttirnar eru þessar: Emilía Sól verður 4RA ÁRA eftir 17 daga!!!!!!8|Ég trúi því ekki að hún sé orðin svona gömul, það bara getur ekki verið, ég sem bara rétt rúmlega tvítug, hehehe:lol:, getur ekki verið að ég eigi 4ra ára gamallt barn.  En ég er aðeins farin að vinna í því að hanna skýrlífsbelti  sem verður sett á hana þegar hún verður 11 ára eða svo. Það má ekki vera neitt óþægilegt eða svoleiðis, á bara að loka fyrir aðgang hjá henni þar til hún verður svona 18 ára eða svo. Þannig að það erum 7 ár til stefnunnar og ég er bara nokkuð viss um að mér takist þetta á þeim árum, hvað haldið þið???:D

 En fullt af afmælum þessa dagana, hér koma kveðjurnar: Konný, Bára, Aldís Vala, Bragi bró. og Maggi skábró. Til hamingju með afmælin ykkar!! Og Heiða og Balli til hamingju með gullmolana ykkar tvo:D

 8)Kem örugglega með annað hérna inn fljótlega og þá koma kveðjurnar fyrir september, Adios amigo....


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 19:52:36 / þýnkó

Sumarfríið...

 

Hæ og jibbí jey og jibbí jey, ég er, ennþá í fríi;) segi svona:)

Það er allt gott að frétta af okkur Keflavíkurmæðgunum;) Við erum lítið búnar að vera heima síðan ég byrjaði í fríi.

Það var mjög fínt á Akureyri hjá okkur, íbúðin var bara æðisleg  og ég væri sko alveg til í að eiga hana, hún var það flott, mjög heimilisleg og kósý.  Potturinn var að vísu eitthvað pínu skrítinn, var annað hvort of kaldur eða of heitur:S en við létum það ekki mikið á okkur fá og vorum duglegar að kíkja í hann.  Þórhildur systir og fjölskylda komu til okkar og það var æðislega gaman hjá skvísunum að vera saman, bæði  þeim litlu og líka hjá okkur stóru. Stutt lýsing á ferðinni: afslöppun, potturinn, leikvellir, endurnar, sund, jólahúsið og húsdýragarður, og svo auðvita smá búðarráp:haha: það fylgir víst alltaf. Við fórum svo heim seinni partinn á fimmtudeginum og það var mjög notalegt að koma heim, eiginlega ótrúlega notalegt.

Við stoppuðum stutt heima og fórum um hádegisbil upp í bústað hjá M og P og vorum í  fjórar nætur þar. Pabbi og Emilía voru mjög dugleg að dunda sér þar svo ég fékk góðan tíma til að læra. Við kíktum auðvita í pottinn þar líka og svo var trampólínið mikið notað:D

Þetta er búið að vera frábært sumarfrí hjá mér og ég er bara ferlega ánægð með allt saman, reyndar fyrir utan veðrið, þegar við vorum á Akureyri var rigning og rok næstum alla daga en sól hér heima og þegar við komum heim var það ákkúrat öfugt, pínu svekkjandi að við skulum ekki vera búnar að fá nema kannski 4 daga í ágætu veðri, en svona er það víst að búa á þessu landi. (Alger pollýana). Þetta er búið að vera allt of fljótt að líða og það hryggir mig mikið að segja að ég á bara viku eftir af sumarfríinu mínu:(. En ég á svona viku inni launalaust svo kannski getur maður skellt sér til útlanda eða eitthvað í vetur. Jæja nóg í bili, heyri í ykkur .......


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 18:09:44 / þýnkó

Sigrún calling...

Jæja gott fólk, þá erum við mæðgurnar að fara á Akureyri á föstudaginn. Veit samt ekki hvað við eigum eiginlega að gera þar en það kemur í ljós, eruð þið með einhverjar tillögur??? :lol:Ætli við munum ekki bara njóta þess að dúlla okkur og hitta Þórhildi og fjölskyldu. Er svolítið mikið farin að þurfa að fara í frí og hlakka mikið til að slaka vel á.  8)


Það er svo sem ekki mikið að gerast , hitti nokkrar gamlar skólasystur og vinkonur á laugardaginn og það var mjög gaman að spjalla saman. Svo er skvísan hjá pabba sínum þessa dagana þannig að ég er hálf eirðarlaus eftir vinnu :lol: kann ekki að slaka bara á, þarf alltaf að vera að gera eitthvað, ótrúlegt hvað maður er mikill klaufi í því að slaka á.  :s Ætti kannski að athuga hvort ég geti ekki bara farið að prjóna eða föndra eða eitthvað, eða kannski reynt að læra eitthvað, ekki svo galið. :haha:
Nóg í bili, veit ekki hvenær það kemur eitthvað meira hérna inn en kannski eftir Akureyrarferðina. Over and out.....


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 22:41:18 / þýnkó

Sælt veri fólkið

Halló allir!

Það er bara allt gott að frétta af okkur mæðgunum, við erum ávallt hressar og kátar8)Við erum alveg að fara í sumarfrí báðar tvær.Húrra!!!!! Emilía er að fara til pabba síns núna um helgina og verður í viku :( en maður verður víst að venja sig á það, aðeins að setja sig í spor hans í smá stund:)

Ég fer svo í frí 11.júlí!!!! Can´t wait!!!! Og þá förum við mæðgurnar á Akureyri í viku og fáum fáa en góða gesti til okkar. Svo er bara restin af fríinu óákveðið en ég mæti aftur eftir verslunarmannahelgi í vinnuna.

Veit svo sem ekki mikið hvað annað ég á að segja þannig að ég er bara að hugsa um að hafa þetta nóg í bili.  Sorry fólk er alveg tóm eitthvað


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 18660